Hæ þú!!
Er lífið eins og þú vilt hafa það?
Viltu bæta við meiri lífsgleði, lífsorku, hamingju og vellíðan?....
....Það þarf ekkert að vera að....En ertu til í meira...
Langar þig að upplifa meiri vellíðan, meiri hamingju, orku og gleði ?
-01-
Viltu upplifa meiri lífskraft ?
Ekki bara að komast í gegnum daginn – heldur að vakna með tilgang og gleðitilfinningu. Að finna að lífið sé meira en bara verkefnalisti.
-02-
Viltu finna meiri ró og jafnvægi innra með þér?
Viltu upplifa meiri frið í eigin huga og sleppa við stöðuga spennu og álag.
-03-
Viltu rækta fleiri augnablik gleði og léttleika?
Brosa oftar, hlæja meira, njóta meira – jafnvel litlu hlutanna – og finna meiri tilfinningalegt svigrúm í daglegu lífi.
...Ef þú ert tengir við eitthvað af þessu þá er jákvæð sálfræði og andleg heilsurækt fyrir þig !
Þetta mun líka gagnast þér í vinnunni...af því að....þegar okkur líður vel í vinnunni þá er.....
Allt að 8 sinnum meiri þátttaka
Allt að 3 x meiri afköst
Allt að 32% minna tjón
Allt að 30% færri veikindaleyfi
Allt að 4 x minni líkur á að þú hættir í vinnunni
Athugaðu hvort að vinnuveitandi þinn eða stéttarfélag styrki þig í að sækja þetta námskeið!
Skoðaðu málið
Allir græða á því !
Jákvæð sálfræði og andleg heilsurækt ef þú vilt....
- Efla sjálfstraust og sjálfsumhyggju
- Auka daglega gleði og þakklæti
- Finna meiri ró og jafnvægi
Upplifa tilgang og merkingu í lífinu
Styrkja þína innri leiðsögn
Meiri lífsgæði og lífsánægja
“Jákvæð sálfræði byggir á vísindalegum rannsóknum á blómstrun mannsins og hagnýtri nálgun til að ná sem bestum árangri."
– Gable & Haidt
.
„Gott líf er ferli, ekki ástand. Það er vegferð, ekki endapunktur.“
— Carl Rogers
Hvað gerir þetta námskeið fyrir þig?
- Þetta er ekki bara fræðsla – þetta er innri vegferð sem gefur þér verkfæri, innsýn og stuðning til að lifa meira í takt við það sem raunverulega skiptir þig máli.
- Þú lærir aðferðir sem hafa verið rannsakaðar í jákvæðri sálfræði og hafa sýnt mælanleg áhrif á líðan, seiglu og hamingju.
- Þú þarft ekki að umbylta lífinu til að upplifa breytingar. Smáar venjur og einfaldar æfingar geta haft djúp áhrif.
Ímyndaðu þér að...
-
Fnna innri ró og jafnvægi
-
Rækta meiri gleði og þakklæti í daglegu lífi
-
Taka skref í átt að meiri tengingu – við sjálfa(n) þig og aðra
-
Virkja styrkleika þína og lifa í takt við eigin gildi
-
Upplifa orku sem kemur innan frá – ekki bara af verkefnalista
Þetta nýtist þér líka í vinnu
#1- Ertu fagaðili?
Þetta námskeið er ekki bara fyrir þig sem manneskju – heldur líka sem fagaðila. Ef þú vinnur með fólki, leiðir aðra eða berð ábyrgð í krefjandi umhverfi, getur þetta námskeið stutt við þig á fleiri en einn hátt.
#2- Þú getur ekki hellt úr tómum bikar
Þú lærir að rækta þína eigin vellíðan, orku og sjálfsumhyggju – svo þú getir mætt öðrum af heilindum og styrk.
#3- Þú dýpkar þekkingu þína á jákvæðri sálfræði og notkun hennar í starfi
Þú færð fræðilegan grunn og hagnýtar aðferðir sem nýtast í vinnu með fólki, í kennslu, handleiðslu, hópastarfi og í leiðtogahlutverki.
#4- Þú styrkir tengsl og samskipti í starfi
Aukin meðvitund um jákvæðar tilfinningar, styrkleika og merkingu hjálpar þér að byggja upp heilbrigðari tengsl – bæði við samstarfsfólk og skjólstæðinga.
#5- Þú færð rými fyrir eigin vöxt og innri festu
Í starfi þar sem þú ert alltaf að gefa af þér, er dýrmætt að eignast stað og tíma þar sem þú færð að læra sem manneskja – ekki bara fagmaður.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Fyrir þig ef þú:
- Ert orðin þreytt(ur) á að vera stöðugt að gefa – en finnur að þú þarft að næra þig sjálfa(n).
- Ert farin að spyrja þig: „Er þetta allt sem lífið hefur upp á að bjóða?“ og vilt eitthvað meira – dýpra.
- Ert tilbúin(n) að rækta styrkleika þína í stað þess að vera föst/fastur í því sem „vantar“ hjá þér
- Hefur áhuga á jákvæðri sálfræði og innri vexti – og vilt læra hvernig þú getur notað þetta í raunveruleikanum.
Ekki fyrir þig ef:
- Þú vilt töfralausn án þess að staldra við eða horfa inn á við.
- Þú hefur engan áhuga á að vaxa sem manneskja eða kanna hvað gefur lífi þínu gildi.
- Þú ert ekki reiðubúin(n) að gefa þér tíma og rými til að hlúa að þér.
- Þú ert ekki tilbúin(n) að skoða eigin hugsanir, tilfinningar og venjur.
- Þú ert ekki tilbúin(n) að læra nýja hluti, nálgun og aðferðir.
Skoðum innihaldið
1 - Vellíðan 101
Inngangur að jákvæðri sálfræði og skilningur á vellíðan – hvað hefur áhrif á hamingju okkar og á hverju getum við raunverulega haft stjórn á?
2 - Heilbrigðar venjur
Venjur sem styðja við jafnvægi og vellíðan – smá skref sem styðja við vellíðan bæði líkamlega, andlega og félagslega.
3 - Jákvæðar tilfinningar
Af hverju tilfinningar skipta máli og hvernig við getum ræktað meira af þeim jákvæðu í daglegu lífi.
4 - Styrkleikar og flæði
Kynnumst eigin styrkleikum og hvernig við getum nýtt þá til að finna tilgang, áhuga og upplifa flæði.
5 - Sambönd og tengsl
Sambönd eru hornsteinn vellíðunar – hér skoðum við samskipti, samkennd og öruggi og hvernig við getum byggt upp heilbrigðari og dýpri tengsl..
6 -Tilgangur og merking
Hvað veitir lífinu merkingu? Hvernig getur lífssýn, trú og gildi mótað leiðina okkar áfram? Við skoðum leiðir til að tengjast dýpri tilgangi og upplifa merkingu í starfi og einkalífi.
7 - Árangur og seigla
Lærum að setja markmið, fylgja eftir breytingum og efla seiglu. Hvernig byggjum við upp sjálfstraust og trú á eigin getu? Hér tengjum við saman alla þættina og skoðum næstu skref í eigin lífsstefnu.
Aukaefni og stuðningur
Stofnaður verður lokaður facebook hópur sem hægt er að setja inn spurningar og vangaveltur á milli tíma.
Um mig ...
Ég heiti Hugrún Linda Guðmundsdóttir og ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að tengjast sjálfu sér, finna innri styrk og lifa í samræmi við eigin gildi.
Ég er menntaður félagsráðgjafi vottaður markþjálfi, kennari í núvitund og jóga, með sérmenntun í jákvæðri sálfræði og streitustjórnun. Ég hef unnið með fjölda fólks í gegnum árin – bæði í heilbrigðiskerfinu og í einkarekstri – sem hefur glímt við streitu, kulnun aðrar lífskreppur og tilfinningu um að vera föst í eigin lífi.
Ég sameina vísindalega þekkingu úr vestrænni sálfræði við visku og aðferðir úr austurlenskum fræðum. Ég veit að raunveruleg umbreyting gerist ekki í gegnum orð á skjá, heldur í gegnum reynslu.
Þess vegna er þetta námskeið byggt þannig að þú færð tækifæri til að upplifa og skynja – ekki bara „læra“.
Ég mun leiða þig skref fyrir skref í átt að meiri ró, orku og gleði – með hagnýtum aðferðum sem þú getur tekið með þér inn í daglegt líf.
Hvað er innifalið?
-1-
7 skipti á Zoom
Sjö skipti þar sem við hittumst á Zoom í eina og hálfa klukkustund. Klukkutími fer í að fara yfir efnið og svo 30 mínútur í lokin fyrir þá sem vilja spyrja og spjalla.
-2-
Vinnubók
Virkilega vegleg vinnubók og efni sem þú getur nýtt þér það sem eftir er ævinnar. Fræðsla og verkefni sem styðja þig í þessari vegferð.
-3-
Upptökur af efni
Þú færð aðgang að upptökum af hverjum tíma fyrir sig, þannig að ef þú missir af tíma þá getur þú horft eftir á.
-4-
Facebook stuðningshópur
Þú færð aðgang að lokuðum facebook hóp þar sem hægt er að spyrja og spjalla og sækja sér stuðning.
Skrá migHvað segja rannsóknir um jákvæða sálfræði?
Rannsóknir sýna að jákvæð sálfræði eykur vellíðan, eflir seiglu og bætir lífsgæði – bæði til skemmri og lengri tíma.
Það að rækta jákvæðar tilfinningar, styrkleika og merkingu í lífinu hefur bein áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
Þarftu nokkuð að bíða?
Skráðu þig núna!
Það er kynningarverð í gangi í vor!
IS THERE A GUARANTEE?
Yes! A 100% Money Back Guarantee
This product has a 30 day money back guarantee. If you work through the first few modules of this course and are not completely satisfied we will refund your money. ** Refunds must be requested in writing within this refund period.
Commonly Asked Questions
Your Accordion Heading Goes Here
Your Accordion Heading Goes Here
Your Accordion Heading Goes Here
Your Accordion Heading Goes Here
JOIN TODAY
The Ultimate ipsum dolor sit amet, metus at rhoncus dapibus.