ÞÚ ERT MIKILVÆGASTA VERKFÆRIÐ
Fyrirlestur fyrir vinnustaði sem vilja verja starfsorku fagfólks og byggja upp seiglu í krefjandi mannlegum störfum.
n
Í störfum þar sem unnið er með fólki er fagmanneskjan sjálf eitt mikilvægasta verkfærið. Hún kemur með reynslu sína, styrkleika, gildi og mörk inn í starfið, og starfið hefur á sama tíma áhrif á hana.
Þegar álagið er mikið er það því ekki aðeins þekking og aðferðir sem skipta máli, heldur hvort fagfólkið nái að standa öruggt í eigin hlutverki og verja starfsorku sína til lengri tíma.
Fyrir teymið
Fyrirlesturinn skapar sameiginlegt tungumál innan hópsins um faglegt álag, mörk, ábyrgð og starfsorku. Það gerir teymum auðveldara að tala um sjálfbærni í starfi, ekki bara þegar eitthvað fer úrskeiðis, heldur sem hluta af daglegri fagmennsku.
Fyrirlesturinn beinir athyglinni að fagmanninum sjálfum og því sem heldur honum starfhæfum, öruggum og í þróun.
Styrkja
Aukin sjálfsvitund um hvað hver og einn kemur með inn í starfið, og skýrari sýn á eigin gildi, styrkleika og viðbragðsmynstur í samskiptum.
Vernda
Færni til að setja og viðhalda faglegum mörkum, þekkja fyrstu merki um að gengið sé á starfsorkuna og verja hana áður en í óefni er komið.
Þróa
Vinnubrögð sem styðja faglegt öryggi og sjálfstraust til lengri tíma, svo fólk geti þróast í starfi án þess að ganga á eigin heilsu.
Styrkja
Aukin sjálfsvitund um hvað hver og einn kemur með inn í starfið, og skýrari sýn á eigin gildi, styrkleika og viðbragðsmynstur í samskiptum.
Vernda
Færni til að setja og viðhalda faglegum mörkum, þekkja fyrstu merki um að gengið sé á starfsorkuna og verja hana áður en í óefni er komið.
Þróa
Vinnubrögð sem styðja faglegt öryggi og sjálfstraust til lengri tíma, svo fólk geti þróast í starfi án þess að ganga á eigin heilsu.
Fyrir hverja?
Fyrirlesturinn er fyrir fagfólk sem vinnur með fólki og ber ábyrgð á stuðningi, þjónustu, ráðgjöf, umönnun eða kennslu.
Ávinningur
Fyrirlesturinn veitir þátttakendum tækifæri til að staldra við og skoða eigin stöðu sem fagmanneskjur.
Þeir fá skýrari sýn á:
- hvernig þeir nýta sjálfa sig í starfinu,
- hvað styrkir faglegt öryggi og sjálfstraust,
- hvernig hægt er að setja og viðhalda faglegum mörkum,
- hvað hjálpar til við að vernda starfsorku og faglega getu,
- og hvernig þeir vilja þróast áfram í starfi.
Fyrirlesturinn getur jafnframt skapað sameiginlegt tungumál innan starfshóps um faglegt álag, mörk, ábyrgð, starfsorku og sjálfbærni í starfi.
Lengd og framkvæmd
Fyrirlesturinn er 40–60 mínútur og hægt er að aðlaga áherslur hans að starfsemi, starfsfólki og aðstæðum hvers vinnustaðar.
Um Hugrúnu Lindu
Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA með starfsleyfi frá Landlækni, faglegur handleiðari og sérfræðingur í streitustjórnun og seigluþjálfun.
Hún starfar sjálfstætt við ráðgjöf, faglega handleiðslu, fræðslu og starfsþróun. Hún hefur víðtæka reynslu af því að vinna með fagfólki og einstaklingum sem takast á við mikið álag, krefjandi samskipti, streitutengd einkenni, örmögnun og kulnun.
Hugrún Linda hefur lokið diplómanámi í faglegri handleiðslu, jákvæðri sálfræði á meistarastigi og mannauðsstjórnun. Hún er einnig markþjálfi og hefur lokið sérhæfðu námi í streitustjórnun, seigluþjálfun, núvitund og tengslum huga og líkama.
Í starfi sínu leggur hún áherslu á að styrkja, vernda og þróa fagmanninn – svo hann geti staðið öruggur í eigin hlutverki, sinnt starfi sínu af fagmennsku og varðveitt starfsorku sína til lengri tíma.
Viltu styrkja fagfólkið á þínum vinnustað?
Sendu fyrirspurn um lausar dagsetningar eða til að ræða hvernig fyrirlesturinn getur hentað ykkar starfsemi og starfsfólki.
Fræðslustyrkir fyrir vinnustaði
Margir vinnustaðir geta fengið faglega fræðslu sem þessa greidda að hluta úr fræðslusjóði. Þá sækir vinnustaðurinn eða stofnunin sjálf um styrk vegna starfsþróunar starfsfólks, í stað þess að hver og einn starfsmaður sæki um einstaklingsstyrk.
Réttur og fjárhæð fer eftir reglum hvers sjóðs og félagsaðild þeirra sem taka þátt. Því er gott að kanna málið hjá viðeigandi fræðslusjóði um leið og fyrirlesturinn er skipulagður.