OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR

Heilsa og starfsorka

Persónulegt stuðningsferli við streitu og álagi

Stöðumat. Þrír einkatímar. Vegleg vinnubók. Rafrænt námskeið. Markviss eftirfylgni.

125.000 kr.

Aðeins átta pláss eru í boði í hverjum mánuði.

Skrá mig í Heilsu og starfsorku

Þegar álag hefur verið mikið í einhvern tíma getur það farið að hafa áhrif á heilsuna og ýmislegt annað. Orkuna. Svefninn. Þolinmæðina. Einbeitinguna. Samskiptin. Getuna til að ná sér almennilega niður eftir vinnudaginn.

Oft heldur maður samt áfram að sinna því sem þarf að sinna. En finnur kannski að það sem áður gekk ágætlega er farið að kosta meira.

Heilsa og starfsorka er persónulegt stuðningsferli fyrir fólk sem vill staldra við, taka stöðuna og bregðast við áður en álagið verður meira.

Ferlið tekur 8–12 vikur. Þú færð þrjá einkatíma með mér, stöðumat í upphafi og lok og aðgang að umfangsmikilli fræðslu, veglegri vinnubók og hagnýtum verkfærum.

Persónulegi stuðningurinn er kjarninn. Fræðslan styður síðan við vinnuna okkar og hjálpar þér að skilja betur eigin streituviðbrögð, finna hvað hefur mest áhrif á líðan þína og velja leiðir sem henta þér og þínum aðstæðum.

Við byrjum ekki á tilbúinni lausn

Við byrjum á þér

Streita og álag birtast ekki eins hjá öllum.

Hjá einum snýst álagið fyrst og fremst um mikið vinnuálag og ábyrgð. Hjá öðrum eru mörkin milli vinnu og einkalífs farin að verða óskýr og vinnan fylgir með heim.

Sumir finna fyrir líkamlegri spennu, þreytu eða svefnvanda. Aðrir finna styttri þráð, eiga erfiðara með að einbeita sér eða finna að þeir hafa minna svigrúm en áður.

Oft er þetta blanda af mörgu, bæði úr lífi og starfi.

Þess vegna byrjum við á að taka stöðuna á þér, líðan þinni og aðstæðum. Við skoðum hvað er að hafa mest áhrif á heilsu þína og starfsorku og mótum áherslur ferlisins út frá því.

Stundum þarf að læra ný verkfæri. Stundum þarf fyrst og fremst að staldra við og fá betri yfirsýn yfir stöðuna. Og stundum veit fólk ágætlega hverju það þarf að breyta en þarf faglegan stuðning við að finna raunhæfa leið til þess.

Við vinnum út frá því sem á við hjá þér.

 

Fyrir hverja er ferlið?

Heilsa og starfsorka er sérstaklega þróað fyrir fólk í álags- og ábyrgðarstöðum:

  • Fagfólk í félags-, heilbrigðis- og menntageira.
  • Stjórnendur og fólk sem ber ábyrgð á starfsfólki, þjónustu eða verkefnum.
  • Framlínufólk.
  • Fólk sem sinnir öðrum og vinnur náið með fólki.
  • Aðra sem finna fyrir langvarandi álagi í lífi eða starfi.

Í þessum störfum geta ábyrgð, krefjandi samskipti og þarfir annarra tekið mikla orku. Það getur verið erfitt að skilja vinnuna eftir þegar heim er komið og skapa svigrúm fyrir eigin hvíld og endurheimt.

Ferlið getur hentað þér ef þú:

  • Ert oft þreytt eða þreyttur og orkan endist illa.
  • Átt erfitt með að ná þér niður eftir vinnudaginn.
  • Finnur að vinnan eða ábyrgðin fylgir þér heim.
  • Finnur fyrir spennu, óróleika eða öðrum streitumerkjum.
  • Átt erfiðara með svefn, einbeitingu eða þolinmæði.
  • Finnur að úthaldið er minna en áður.
  • Átt erfitt með að setja mörk eða halda þeim.
  • Hefur sett eigin líðan aftarlega í langan tíma.
  • Veist að eitthvað þarf að breytast en nærð ekki almennilega utan um það.
  • Vilt bregðast við áður en álagið verður meira.

Persónuleg vinna

Ekki sama leiðin fyrir alla

Einkatímarnir eru kjarninn í ferlinu.

Þeir standa ekki einir heldur tengjast saman yfir 8–12 vikur. Þannig gefst tími til að taka stöðuna, prófa nýjar leiðir og skoða hvernig þær nýtast í raunverulegu lífi.

Við getum meðal annars skoðað:

  • Hvað veldur mestu álagi hjá þér.
  • Hvernig streitan birtist í líkama, hugsunum og líðan.
  • Vinnuálag og ábyrgð.
  • Mörk í starfi og einkalífi.
  • Samskipti sem taka mikla orku.
  • Hvernig þú bregst við þegar álagið eykst.
  • Svefn, hvíld og endurheimt.
  • Hvað gefur þér orku og hvað tekur hana.
  • Venjur og mynstur sem hafa áhrif á líðan.
  • Hvað þú getur haft áhrif á.
  • Hvað gæti þurft að ræða, breyta eða endurskoða.

Þú þarft ekki að vinna með allt efnið eða tileinka þér öll verkfærin. Við veljum það sem skiptir mestu máli fyrir þig og tengjum fræðsluna við þínar aðstæður.

Skrá mig

Þrír einkatímar yfir 8–12 vikur

Hver einkatími er 55 mínútur. Þú velur hvort þú mætir á stofuna mína í Urðarhvarfi 14 í Kópavogi, eða tekur tímana í fjarviðtali.

1
Fyrsti tíminn

Staðan og áherslurnar

Áður en við hittumst svarar þú stöðumati. Í fyrsta tímanum förum við yfir niðurstöðurnar, líðan þína og áskoranir þínar. Stöðumatið tekur til streitu, streitumerkja, kvíða og depurðar. Það er ekki læknisfræðileg greining heldur hjálpar okkur að velja áherslur. Þú ferð út með skýrari mynd af því hvar er skynsamlegt að byrja.

2
Annar tíminn

Stuðningur og aðlögun

Eftir um það bil mánuð hittumst við aftur. Þá höfum við reynslu úr daglegu lífi til að vinna með. Við skoðum hverju þú hefur tekið eftir, hvað hefur nýst og hvað reynist erfitt. Við aðlögum áherslurnar og finnum raunhæf næstu skref.

3
Þriðji tíminn

Ný staða og framhald

Undir lok ferlisins endurtökum við stöðumatið. Við skoðum hvað hefur breyst, hvað reyndist gagnlegt og hvað þarf áfram athygli. Saman mótum við skýr og raunhæf næstu skref sem þú getur haldið áfram að nýta.

Umfangsmikil fræðsla styður við ferlið

Með einkatímunum færðu aðgang að heildstæðu rafrænu námskeiði og veglegu stuðningsefni.

Fræðslan er til staðar svo þú getir skilið betur hvað er að gerast, prófað ólíkar leiðir og byggt upp þína eigin verkfærakistu. Hún er ekki hugsuð sem enn eitt verkefnið sem þú þarft að klára.

Þú vinnur á eigin hraða og nýtir það sem styður best við þær áherslur sem við höfum valið saman.

Fjórir rafrænir fyrirlestrar

1

Streita, vinnustreita og kulnun

Hvernig bregðast líkami og hugur við álagi? Hvernig birtast streitumerkin og hvað gerist þegar streita stendur yfir í langan tíma? Fjallað er um streituviðbrögð, taugakerfið, vinnustreitu, kulnun og mikilvægi þess að taka eftir merkjunum áður en álagið verður of mikið.

2

Streitustjórnun og seigla

Hvernig getum við haft áhrif á eigin streituviðbrögð, stutt við endurheimt og aukið hæfni okkar til að takast á við álag? Þú kynnist leiðum til að róa líkama og huga, auka meðvitund og styrkja seiglu í daglegu lífi.

3

Bjargráð og verkfærakistan

Hagnýtar aðferðir og æfingar sem þú getur notað í lífi og starfi. Áherslan er á að byggja upp persónulega verkfærakistu sem hjálpar þér að bregðast fyrr við streitumerkjum og mæta krefjandi aðstæðum á annan hátt.

4

Vöxtur og vellíðan

Fræðsla úr jákvæðri sálfræði um það sem styður við vöxt, vellíðan og starfsorku. Þú skoðar meðal annars hvað veitir þér orku, tilgang og ánægju og hvernig hægt er að skapa meira svigrúm fyrir það sem nærir þig.

Vegleg prentuð fræðslu- og vinnubók

Þú færð vinnubókina Streitustjórnun og seigluþjálfun senda heim til þín.

Vinnubókin byggir á námsefni SMART – Stress Management and Resiliency Training, frá Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine við Massachusetts General Hospital. SMART er gagnreynt átta vikna streitustjórnunar- og seigluþjálfunarprógramm sem byggir á samspili líkama og hugar.

Vinnubókin leiðir þig skref fyrir skref í gegnum átta vikur og inniheldur fjölbreytta fræðslu, verkefni, ígrundun og hagnýtar æfingar. Þar er meðal annars fjallað um:

  • Streituviðbrögð líkamans og áhrif langvarandi álags á heilsu og líðan.
  • Tengsl streitu við líkamleg og tilfinningaleg einkenni.
  • Slökunarsvörun líkamans og ólíkar leiðir til að styðja við ró og endurheimt.
  • Eigin streituvalda, streitumerki og viðbrögð við álagi.
  • Hugsanamynstur, sjálfvirkar hugsanir og leiðir til að þróa hjálplegri viðhorf.
  • Núvitund, ígrundun og aukna meðvitund um eigin líðan og þarfir.
  • Bjargráð, venjur og mörk sem geta styrkt seiglu í daglegu lífi.
  • Mikilvægi svefns, hreyfingar, næringar og annarra heilsueflandi venja.
  • Jákvæða sálfræði og það sem getur stutt við vellíðan, merkingu og lífsgæði.

Vinnan heldur áfram á milli tímanna


Átta vikulegir fræðslu- og eftirfylgnipóstar

Í hverri viku færðu póst sem tengist viðfangsefni vikunnar í vinnubókinni. Póstarnir veita skýrt utanumhald, minna á áherslur og hjálpa þér að halda þræðinum í gegnum ferlið. Persónuleg leiðsögn og eftirfylgni fara fram í einkatímunum þremur.



Rafrænt stuðningsefni

Með námskeiðinu fylgja leiddar æfingar og annað stuðningsefni sem þú getur nýtt eftir þörfum til að styðja við núvitund, ró og endurheimt. Þú heldur aðgangi að rafræna efninu í 12 mánuði og getur því farið aftur yfir fræðsluna og nýtt æfingarnar eftir að persónulega ferlinu lýkur.



Jóga Nidra — aukið rými fyrir hvíld og endurheimt

Þú færð einnig aðgang að átta leiddum Jóga Nidra æfingum. Jóga Nidra er djúpslökun sem getur stutt við hvíld og endurheimt. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og þú getur nýtt æfingarnar þegar þér hentar.

Hverju getur ferlið skilað?

Markmiðið er að þú:

  • Fáir skýrari mynd af eigin stöðu.
  • Skiljir betur hvernig álag hefur áhrif á þig.
  • Þekkir streitumerkin þín fyrr.
  • Áttir þig betur á því hvað tekur orku og hvað styður við endurheimt.
  • Finnir bjargráð sem passa við þig og þínar aðstæður.
  • Náir betur utan um verkefni, ábyrgð og eigin þarfir.
  • Skoðir mörk milli vinnu og einkalífs.
  • Eflir seiglu, vellíðan og starfsorku.
  • Getir mótað raunhæfar breytingar sem þú treystir þér til að viðhalda.

Markmiðið er ekki að bæta fleiri verkefnum á listann þinn.

Markmiðið er að hjálpa þér að staldra við, sjá stöðuna skýrar og finna leiðir sem styðja betur við heilsu þína, líðan og starfsorku.

Faglegur grunnur

Fræðsluefnið byggir meðal annars á SMART – Stress Management and Resiliency Training, streitustjórnunar- og seigluþjálfun frá Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine við Massachusetts General Hospital.

SMART-nálgunin sameinar fræðslu um streitu og samspil líkama og hugar, slökunarsvörun, núvitund, hugsanamynstur, jákvæða sálfræði og heilsueflandi venjur.

Í þessu ferli er þeirri þekkingu fléttað saman við persónulegan stuðning og handleiðslu og tengt við aðstæður hvers þátttakanda.

 

Um Hugrúnu Lindu


Ég heiti Hugrún Linda Guðmundsdóttir og er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni og faglegur handleiðari.

Ég hef sérhæft mig í streitustjórnun, seiglu, starfsorku og sálfélagslegum þáttum í vinnu. Ég hef einnig lokið diplómanámi í faglegri handleiðslu, jákvæðri sálfræði og mannauðsstjórnun, auk náms í markþjálfun, núvitund og SMART-streitustjórnunar- og seigluþjálfun.

Í nær 15 ár hef ég unnið með fólki sem glímir við streitu, langvarandi álag og skerta starfsorku. Ég hef starfað innan heilbrigðiskerfisins, í geðheilsuteymi, sem úrræðaaðili hjá VIRK og sem handleiðari og ráðgjafi fyrir fagfólk og stjórnendur.

Sú reynsla hefur sýnt mér hversu mikilvægt það er að bregðast við fyrr, áður en álag leiðir til alvarlegra veikinda eða langrar fjarveru frá vinnu.

Ég horfi ekki aðeins á streituna sjálfa heldur heildarmyndina: hvernig þér líður, hvað er að gerast í lífi og starfi, hvernig þú bregst við álagi og hvað getur stutt þig við að skapa betra jafnvægi og meiri starfsorku.

Nálgun mín er fagleg, persónuleg og hagnýt. Við vinnum saman út frá þínum þörfum og aðstæðum.

Hvernig hefst ferlið?

Þegar þú skráir þig fæ ég upplýsingarnar þínar og hef samband við þig persónulega innan 2–3 virkra daga.

Við finnum tíma fyrir fyrsta viðtal og ákveðum hvenær þú vilt hefja ferlið. Þú færð stöðumatið, prentaða vinnubók senda heim og aðgang að rafræna efninu þegar þú ert tilbúin eða tilbúinn að byrja.

Einkatímarnir geta farið fram á stofunni minni í Urðarhvarfi 14 í Kópavogi, eða í fjarviðtali.

Heilsa og starfsorka

Persónulegt stuðningsferli í 8–12 vikur

Þú færð:

  • Stöðumat í upphafi og lok.
  • Þrjá 55 mínútna einkatíma.
  • Val um viðtöl á stofu eða í fjarfundi.
  • Veglega prentaða fræðslu og vinnubók senda heim.
  • Fjóra rafræna fyrirlestra.
  • Átta vikulega fræðslu- og eftirfylgnipósta.
  • Rafrænt stuðningsefni og leiddar æfingar.
  • Átta Jóga Nidra æfingar.
  • Tólf mánaða aðgang að rafræna efninu.

Verð: 125.000 kr.

Mögulegt er að stéttarfélagið þitt taki þátt í kostnaðinum. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

Aðeins átta pláss eru í boði í hverjum mánuði.

Skrá mig í Heilsu og starfsorku

Algengar spurningar

Er þetta aðeins fyrir fólk sem er komið í kulnun eða veikindaleyfi?

Nei. Ferlið er sérstaklega hugsað fyrir fólk sem er enn í vinnu en finnur að streita og álag eru farin að hafa áhrif á líðan, heilsu, orku eða starfsgetu.

Ef staðan kallar á annars konar eða umfangsmeiri þjónustu er tekið mið af því.

Þarf ég að starfa í ákveðinni starfsgrein?

Nei. Úrræðið er sérstaklega þróað með þarfir fólks í álagsstörfum og ábyrgðarstöðum í huga en getur einnig hentað öðrum sem finna fyrir langvarandi álagi í lífi eða starfi.

Það sem skiptir mestu máli er hvernig þér líður og hvort þú viljir fá stuðning við að taka stöðuna.

Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég þarf að vinna með. Skiptir það máli?

Nei. Það er einmitt hluti af ferlinu að skoða stöðuna saman.

Stöðumatið og fyrsta viðtalið hjálpa okkur að átta okkur á því hvað skiptir mestu máli og hvar er skynsamlegt að byrja.

Get ég tekið ferlið í fjarviðtali?

Já. Allir þrír einkatímarnir geta farið fram í fjarviðtali. Þú getur einnig valið að mæta á stofuna í Heilsuvernd í Urðarhvarfi 14.

Get ég fengið styrk frá stéttarfélaginu mínu?

Mörg stéttarfélög veita styrki vegna námskeiða, heilsueflingar eða faglegs stuðnings.

Reglur og styrkupphæðir eru mismunandi eftir stéttarfélögum. Hafðu samband við þitt félag og kannaðu rétt þinn áður en þú skráir þig.

Hversu miklum tíma þarf ég að verja í vinnuna á milli tíma?

Það fer eftir þínum aðstæðum og þeim áherslum sem við veljum.

Vinnubókin, póstarnir og rafræna efnið eru hugsuð til að styðja þig, ekki til að bæta við löngum verkefnalista. Þú vinnur á eigin hraða og nýtir það sem hentar þér.

Er ég með aðgang að Hugrúnu Lindu á milli tíma?

Persónulega vinnan og leiðsögnin fara fram í einkatímunum þremur. Á milli tíma styðja vinnubókin, vikulegu póstarnir, fræðslan og æfingarnar við ferlið.

Pakkinn felur því ekki í sér ótakmarkaðan persónulegan aðgang á milli tíma.

Hversu lengi hef ég aðgang að rafræna efninu?

Þú hefur aðgang að rafræna námskeiðinu og stuðningsefninu í 12 mánuði.

Hvað gerist eftir 8–12 vikurnar?

Í lok ferlisins tökum við stöðuna aftur og skoðum hvað hefur breyst, hvað hefur nýst þér og hvað þú þarft áfram.

Fyrir suma er þetta afmarkaða ferli nægilegt. Ef þú vilt eða þarft frekari stuðning getum við rætt hvaða leið hentar þér áfram.

Staldraðu við áður en þú keyrir þig út

Þú þarft ekki að bíða eftir því að orkan klárist.

Í Heilsa og starfsorka færðu persónulegan stuðning, skýra fræðslu og hagnýt verkfæri til að taka stöðuna og finna leiðir sem styðja við heilsu þína, líðan og starfsorku.

Ferlið tekur 8–12 vikur og aðeins átta pláss eru í boði í hverjum mánuði.

125.000 kr.

 

 

Skrá mig í Heilsu og starfsorku

 

 


Mögulegur styrkur frá stéttarfélagi

Mörg stéttarfélög veita félagsfólki styrki vegna námskeiða, heilsueflingar eða faglegs stuðnings. Því er mögulegt að þú getir fengið úrræðið greitt að hluta eða öllu leyti úr viðeigandi sjóði.

Réttur til styrks og styrkupphæð fer eftir reglum hvers stéttarfélags. Þú þarft því að kanna rétt þinn hjá þínu félagi.

Heilsa og starfsorka

Persónulegt stuðningsferli í 8–12 vikur 

Þú færð:

  • Stöðumat í upphafi og lok.
  • Þrjá 55 mínútna einkatíma.
  • Val um viðtöl á stofu eða í fjarfundi.
  • Veglega prentaða fræðslu og vinnubók senda heim.
  • Fjóra rafræna fyrirlestra.
  • Átta vikulega fræðslu- og eftirfylgnipósta.
  • Rafrænt stuðningsefni og leiddar æfingar.
  • Átta Jóga Nidra æfingar.
  • Tólf mánaða aðgang að rafræna efninu.

Verð: 125.000 kr.

Mögulegt er að stéttarfélagið þitt taki þátt í kostnaðinum. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

Aðeins átta pláss eru í boði í hverjum mánuði.

Skrá mig í Heilsu og starfsorku