Heilsan, streitan og taugakerfið.
Netnámskeið á þínum hraða og þínum forsendum - 12 mánaða aðgangur !
LÆRÐU AÐ ÞEKKJA RAUÐU LJÓSIN.
Finnurðu fyrir viðvarandi streitu, álagi eða þreytu – jafnvel þótt „allt sé í lagi“ á yfirborðinu?
Margir lifa lengi í viðbragðsstöðu og sjálfstýringu án þess að gera sér grein fyrir því. Líkaminn aðlagast álagi, heldur áfram og „reddar sér“ – þar til hann fer að senda skýrari skilaboð:
spennu, orkuleysi, svefntruflanir, einbeitingarskort eða stöðuga innri ólgu sem erfitt er að hægja á.
Þetta námskeið er fyrir þig sem vilt skilja hvað er að gerast í líkamanum, þekkja rauðu ljósin fyrr og læra hagnýtar leiðir til að styðja eigin líðan og efla álagsþol.
SKRÁ MIG
Af hverju þetta námskeið?
Ég setti saman „Heilsan – streitan og taugakerfið“ vegna þess að margra ára reynsla úr viðtölum hefur vakið mig til umhugsunar.
Það sem situr eftir hjá mér aftur og aftur er þetta:
Fólk leitar sér aðstoðar allt of seint!
Ég hitti endurtekið fólk sem:
- keyrir áfram þrátt fyrir viðvarandi álag
- setur sig aftast í forgangsröðunina
- á erfitt með að setja mörk og segja nei
- ber mikla ábyrgð og vill ekki valda vonbrigðum
- þekkir ekki eigin mörk fyrr en líkaminn fer að kalla hátt
- finnur sig ótengt sjálfum sér, þörfum sínum og tilfinningum
- skammast sín fyrir líðan sína og upplifir vanmátt – jafnvel í ábyrgðarstöðum
Í einkaviðtölum erum við yfirleitt að fara yfir svipaða hluti og vinna með sama grunninn og þess vegna bjó ég til þetta aðgengilega námskeið.
Svo þú (og fleiri) getir:
- áttað þig fyrr á því hvað er að gerast
- skilið betur líkama þinn og viðbrögð
- metið hvort þú þurfir stuðning og hvaða stuðning
- gert breytingar sem skipta raunverulega máli
.........og gripið í taumana áður en "þú klessir á vegginn"
EF ÞÚ HEFUR EKKI TÍMA FYRIR HEILSUNA - ÞÁ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ SKOÐA FORGANGSRÖÐUN Í ÞÍNU LÍFI.
ÞEGAR STREITA VERÐUR AÐ VIÐVARANDI ÁSTANDI.
Streita og álag safnast smám saman upp. Fyrstu merkin eru gjarnan lúmsk, en ef ekkert er gert geta þau þróast yfir í langvarandi einkenni, og síðar mögulega kulnun eða örmögnun.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- streitu, vinnustreitu og kulnun
-
hvernig streita birtist í líkama og huga
-
hvernig taugakerfið bregst við langvarandi álagi
-
hvers vegna „að slaka bara á“ dugir oft ekki
-
hvernig álag smitast út í daglegt líf, vinnu og samskipti
Áherslan er á forvarnir – að bregðast við áður en líkaminn neyðir þig til að stoppa.
SKRÁ MIGVissir þú að allt að 60 %–80 % af heimsóknum til lækna eru tengdar streitutengdum þáttum á einhvern hátt.
Því fyrr sem þú bregst við, því meiri möguleika hefurðu á að styðja eigin vellíðan og starfsgetu til lengri tíma.
LEYFÐU ÞÉR AÐ FJÁRFESTA Í FORVÖRNUM, JAFNVÆGI OG VELLÍÐAN
INNIHALD NÁMSKEIÐS
NÁMSKEIÐIÐ SAMANSTENDUR AF 3 LOTUM, HVER LOTA BÚTUÐ NIÐUR Í STUTTA OG HNITMIÐAÐA FYRIRLESTRA, ÁSAMT VERKEFNUM OG VERKFÆRUM SEM STYÐJA VIÐ INNLEIÐINGU Í DAGLEGT LÍF
TÍMI 01
Streita, vinnustreita, kulnun
- Hvað er streita og hvernig birtist hún í líkama og huga?
- Hvað er vinnustreita og kulnun
- Okkar ábyrgð og ábyrgð vinnustaða í forvörnum gegn streitutengdum veikindum
- Algeng einkenni og viðvörunarmerki álags
- Verkefni: Kortlagning á eigin streituvöldum og streitumerkjum í lífi og starfi.
TÍMI 02
Streitustjórnun og seigla – að byggja upp álagsþol
- Hagnýtar leiðir til að stjórna og draga úr streitu
- Seigla sem færni sem hægt er að þjálfa og styrkja til að auka álagsþol
- Að staldra við og hlusta á eigin mörk og þarfir
- Verkefni: Kortlagning á seiglu, leiðum og bjargráðum.
TÍMI 03
Verkfærakista og bjargráð
- Líkamleg, hugræn, tilfinningaleg og félagsleg bjargráð
- Aðferðir til að efla sefkerfi líkamans, auka streituvitund og auka hæfni og getu til að þola álag betur
- Verkefni: Að búa til persónulega verkfærakistu og skýr markmið um notkun bjargráða.
Hvað fylgir með?
-
Aðgangur að öllu efni á lokuðu svæði í 12 mánuði
- Þú færð aðgang samstundis og vinnur efnið á eigin hraða
-
Verkefni og æfingar með hverjum fyrirlestri
-
Hagnýtar ráðleggingar
-
Viðbótarefni sem hjálpar þér að innleiða það sem þú lærir
- Eftir námskeiðið er einnig mögulegt að panta einkatíma fyrir persónulega eftirfylgni og stuðning. Einkatímar greiðast sér og eru í boði bæði í fjarfundabúnaði og á stofu.
ER ÞETTA FYRIR ÞIG?
ÞETTA ER FYRIR ÞIG SEM ...
✔ finnur fyrir streitu, álagi eða þreytu
✔ vilt þekkja rauðu ljósin fyrr
✔ vilt grípa inn í áður en líkaminn neyðir þig til að stoppa
✔ vilt hagnýt, rannsóknamiðuð og hjálpleg verkfæri sem virka strax
✔ berð mikla ábyrgð í starfi og vilt byggja upp sjálfbæra getu til að takast á við álag.
✔ vilt lifa heilbrigðu lífi í góðu jafnvægi og upplifa velsæld í lífi og starfi.
JÁ ÞETTA ER ÉG!
Hlúðu að heilsunni - Settu súrefnisgrímuna fyrst á þig!
EF ÞÚ HEFUR EKKI TÍMA FYRIR HEILSUNA ÞARFTU VIRKILEGA AÐ SKOÐA FORGANGSRÖÐUN Í ÞÍNU LÍFI
Hæ! Ég er Hugrún Linda.
ÉG ER HÉR TIL AÐ LEIÐA ÞIG ÁFRAM
Ég hef unnið með fólki í álagstengdum veikindum í fjölda ára – bæði með einstaklingum sem eru farin að finna fyrir fyrstu einkennum streitu og með fólki sem hefur glímt við langvarandi álag eða verið í veikindaleyfi.
Reynslan hefur sýnt mér hversu mikilvægt það er að:
-
bregðast við snemma
-
hlusta á líkamann
-
þekkja viðvörunarmerkin áður en þau verða að alvarlegum einkennum
Í minni vinnu sameina ég fræðslu, rannsóknamiðaðar aðferðir og mannlega nálgun. Markmiðið er ekki fullkomnun, heldur meira jafnvægi, aukinn skilningur og sjálfsumhyggja – skref fyrir skref.
Ég er heilbrigðismenntaður kínískur félagsráðgjafi MA. Ég hef sérhæft mig í núvitund, streitustjórnun og seigluþjálfun og kenni aðferðir byggðar á Mind Body Medicine hugmyndafræðinni frá Harvard Medical School og Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine. Auk þess er ég Jóga Nidra kennari. Ég hef lokið diplómanámi í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun auk þess að vera vottaður markþjálfi.
SKRÁ MIGKannaðu þinn rétt á endurgreiðslu hjá stéttarfélagi
Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið.
Við mælum með að þú athugir hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk/endurgreiðslu.
SPURT OG SVARAÐ
ERTU MEÐ SPURNINGU? ÞÚ ÆTTIR AÐ FINNA SVARIÐ ÞITT HÉR AÐ NEÐAN
Fyrir hvern er námskeiðið?
Þarf ég að vera komin/n með alvarleg einkenni til að taka þátt?
Er þetta námskeið meðferðarúrræði?
Hversu mikinn tíma þarf ég að gefa mér?
Hentar námskeiðið fólki í krefjandi starfi eða mikilli ábyrgð?
Er þetta „slökunarnámskeið“?
Hvað fæ ég aðgang að lengi?
Hentar námskeiðið einnig fyrirtækjum eða hópum?
Hagkvæm leið að faglegum stuðningi
Með þessu námskeiði færðu aðgang að faglegri, rannsóknamiðaðri fræðslu og hagnýtum verkfærum sem þú getur nýtt á þínum hraða, aftur og aftur.
Fyrir marga er þetta aðgengileg leið til að byggja upp skilning, seiglu og jafnvægi – á mun lægra verði en einstaklingsviðtöl eða sérhæfð ráðgjöf.
Hlúðu að heilsunni - Settu súrefnisgrímuna fyrst á þig!
EF ÞÚ HEFUR EKKI TÍMA FYRIR HEILSUNA ÞARFTU VIRKILEGA AÐ SKOÐA FORGANGSRÖÐUN Í ÞÍNU LÍFI