NÁMSKEIÐIÐ VEITIR ÞÉR SKILNING OG HAGNÝT VERKFÆRI TIL AÐ DRAGA ÚR STREITU OG VANLÍÐAN. 
 
EFLIR SEIGLU OG STUÐLAR AÐ BETRI LÍÐAN TIL LENGRI TÍMA

FAGLEG OG HJÁLPLEG FRÆÐSLA  - VERKEFNI OG MATSLISTAR 

 
KAUPA NÁMSKEIÐ 19.900 KR.

ÞEGAR STREITA VERÐUR AÐ VIÐVARANDI ÁSTANDI.

Streita og álag safnast  smám saman upp. Fyrstu merkin eru gjarnan lúmsk, en ef ekkert er gert geta þau þróast yfir í langvarandi einkenni, og síðar mögulega kulnun eða örmögnun.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • streitu, vinnustreitu og kulnun 
  • hvernig streita birtist í líkama og huga 
  • hvernig taugakerfið bregst við langvarandi álagi 
  • hvers vegna „að slaka bara á“ dugir oft ekki 
  • hvernig álag smitast út í daglegt líf, vinnu og samskipti
  • Verkfæri og hagnýtar leiðir

Áherslan er á forvarnir – að bregðast við áður en líkaminn neyðir þig til að stoppa.

HVAÐ ER INNIFALIÐ?

 Vissir þú að allt  60 %–80 % af heimsóknum til lækna eru tengdar streitutengdum þáttum á einhvern hátt. 

 

Því fyrr sem þú bregst við, því meiri möguleika hefurðu á að styðja eigin vellíðan og starfsgetu til lengri tíma.


LEYFÐU ÞÉR AÐ FJÁRFESTA Í FORVÖRNUM, JAFNVÆGI OG VELLÍÐAN

Ég er Hugrún Linda.

ÉG ER HÉR TIL AÐ LEIÐA ÞIG ÁFRAM

 

Ég hef unnið með fólki í álagstengdum veikindum í fjölda ára – bæði með einstaklingum sem eru farin að finna fyrir fyrstu einkennum streitu og með fólki sem hefur glímt við langvarandi álag eða verið í veikindaleyfi.

Reynslan hefur sýnt mér hversu mikilvægt það er að:

  • bregðast við snemma

  • hlusta á líkamann

  • þekkja viðvörunarmerkin áður en þau verða að alvarlegum einkennum

Í minni vinnu sameina ég fræðslu, rannsóknamiðaðar aðferðir og mannlega nálgun. Markmiðið er ekki fullkomnun, heldur meira jafnvægi, aukinn skilningur og sjálfsumhyggja – skref fyrir skref.

Ég er heilbrigðismenntaður kínískur félagsráðgjafi MA. Ég hef sérhæft mig í núvitund, streitustjórnun og seigluþjálfun og kenni aðferðir byggðar á Mind Body Medicine hugmyndafræðinni frá Harvard Medical School og Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine. Auk þess er ég Jóga Nidra kennari. Ég hef lokið diplómanámi í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun auk þess að vera vottaður markþjálfi. 

KAUPA NÁMSKEIÐ - 19.900 KR.

Kannaðu þinn rétt á endurgreiðslu hjá stéttarfélagi


Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið.
Við mælum með að þú athugir hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk/endurgreiðslu.

Hagkvæm leið að faglegum stuðningi

Með þessu námskeiði færðu aðgang að faglegri, rannsóknamiðaðri fræðslu og hagnýtum verkfærum sem þú getur nýtt á þínum hraða, aftur og aftur.
Fyrir marga er þetta aðgengileg leið til að byggja upp skilning, seiglu og jafnvægi – á mun lægra verði en einstaklingsviðtöl eða sérhæfð ráðgjöf.

Hlúðu að heilsunni - Settu súrefnisgrímuna fyrst á þig!

EF ÞÚ HEFUR EKKI TÍMA FYRIR HEILSUNA ÞARFTU VIRKILEGA AÐ SKOÐA FORGANGSRÖÐUN Í ÞÍNU LÍFI

Eingreiðsla

19.900 krónur

  • 3 lotur af rafrænum fræðandi og nærandi fyrirlestrum 

  • Verkefni og æfingar sem styðja innleiðingu í daglegt líf

  • Viðbótarefni sem styður við aukna meðvitund og breytingar

  • Aðgangur að öllu efni í 12 mánuði

  • BÓNUS: Aðgangur að átta Yoga Nidra rafrænum djúpslökunarhugleiðslum

  • BÓNUS: Hugleiðslupakki með mismunandi hugleiðslum til að prófa

KAUPA NÁMSKEIÐ - 19.900 KR.