Er streitan farin að hafa áhrif á líðan þína?
Finnur þú fyrir þreytu, pirringi, svefnvanda, einbeitingarskorti eða tilfinningu um að vera alltaf „á vaktinni“?
Langvarandi streita getur haft áhrif á bæði líkama og huga. Hún getur truflað svefn, dregið úr orku, aukið kvíða og gert daglegt líf þyngra.
SMART™ námskeiðið hjálpar þátttakendum að skilja eigin streituviðbrögð og læra gagnreyndar aðferðir til að róa taugakerfið, styrkja seiglu og auka vellíðan.
Næsta námskeið hefst 9. september 2026
Staður og stund
Næsta námskeið hefst 9. september 2026
Kennt á þriðjudögum Kl. 13.00 - 15.30
Námskeiðið er samtals 8 skipti - 2,5 klst. í senn
Kennt í húsnæði Heilsuverndar Urðarhvarfi 14 - 3. hæð.
Verð 98.000
Athugið styrk frá stéttarfélagi eða VIRK
Hvað er SMART™?
SMART™ – Stress Management and Resiliency Training er gagnreynt 8 vikna námskeið sem byggir á vísindum um tengingu hugar og líkama (Mind Body Medicine).
Námskeiðið kennir aðferðir sem byggja á sjálfsvinnu og hjálpa þátttakendum að:
- draga úr daglegri streitu
- virkja slökunarviðbragð líkamans
- auka tilfinningalega stjórn
- efla innri styrk og seiglu
- bæta svefn, orku og lífsgæði
- byggja upp heilbrigðari hugsana- og lífsvenjur
Á námskeiðinu lærir þú að:
- skilja tengsl streitu við líkamleg og andleg einkenni
- þekkja eigin streituvalda og streituviðbrögð
- nota öndun, hugleiðslu og núvitund til að róa taugakerfið
- breyta neikvæðum hugsanamynstrum
- efla jákvætt hugarfar og samkennd
- byggja upp venjur sem styðja við svefn, næringu og hreyfingu
- styrkja tengsl, tilgang og innra jafnvægi
Á námskeiðinu er unnið með fjölbreyttar aðferðir, meðal annars:
- núvitund
- hugleiðslu
- öndunaræfingar
- jóga
- jóga Nidra
- jákvæða sálfræði
- samkenndarnálgun
- ACT
- hugræna nálgun
- markmiðasetningu og lífstílsbreytingar
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar einstaklingum sem:
- upplifa streitu, álag eða kulnunareinkenni
- vilja ná betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- eiga erfitt með að slaka á eða aftengjast
- vilja bæta svefn, orku og einbeitingu
- vilja læra verkfæri sem nýtast í daglegu lífi
- vilja styrkja sig andlega og líkamlega
Taktu virkan þátt
Þetta er virkt námskeið – ekki bara áhorf
SMART™ byggir á þátttöku, umræðu, ígrundun og æfingum.
Þátttakendur fá tækifæri til að prófa aðferðirnar jafnt og þétt yfir 8 vikur og finna hvað virkar best fyrir þá.
Til að fá sem mest út úr námskeiðinu er mælt með að þátttakendur geti mætt í að minnsta kosti 6 af 8 skiptum.
Gagnreynt námsefni með sterkan vísindalegan grunn
SMART™ byggir á rannsóknum og aðferðum frá Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine við Massachusetts General Hospital og tengist fræðilegum grunni frá Harvard Medical School.
Rannsóknir hafa sýnt að þátttakendur í SMART™ geta dregið úr læknisheimsóknum um allt að 43% árið eftir þátttöku.
Leiðbeinandi
Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA með starfsréttindi frá Landlækni. Hún hefur sérhæft sig í streitustjórnun, seiglu, jákvæðri sálfræði, núvitund, markþjálfun og faglegri handleiðslu.
Hugrún er einnig jógakennari og Jóga Nidra kennari og hefur öðlast formleg réttindi til að kenna SMART™ námskeiðið.
Hugrún er með stofu hjá Heilsuvernd og tekur þar á móti fólki. Hún vinnur með þætti eins og álag, streitu og kulnun, ýmsa erfiðleika, lífskreppur, vinnutengda þætti, sjálfseflingu og þætti til að auka lífsgæði, gleði, orku, hamingju og vellíðan.
Innifalið í námskeiðinu
- 8 vikna markviss þjálfun
- vikulegir tímar, 2,5 klst. í senn
- les- og vinnubók
- hagnýtar æfingar milli tíma
- verkfæri til að nota áfram eftir námskeiðið
- stuðningur við að byggja upp nýjar venjur
Ertu með spurningu eða viltu skrá þig?
HAFÐU SAMBAND
Ertu með spurningar eða viltu skrá þig?
Sendu mér skilaboð í formið hér að neðan og ég svara eins fljótt og auðið er..
Ég reyni að svara eins fljótt og auðið er.