Placeholder Image
 

Hvað ef næsta skref að vellíðan væri ekki flókið – heldur raunverulega framkvæmanlegt?

 
Lærðu að skapa þér betra líf með jákvæðri sálfræði og hagnýtum aðferðum sem virka í daglegu lífi.
Jákvæð sálfræði = Andleg heilsurækt
Ég er tilbúin til að skrá mig!
Placeholder Image
Placeholder Image

ER LÍFIÐ EINS OG ÞÚ VILT HAFA ÞAÐ?

Viltu bæta við meiri lífsgleði, lífsorku, hamingju og vellíðan?....

....Það þarf ekkert að vera að....En ertu til í meira...

 

Leiðin að betra lífi hefst hér...

Þú þarft ekki að umbreyta öllu – stundum nægir að breyta því hvernig þú mætir sjálfri/sjálfum þér.

-01-
Viltu upplifa meiri lífskraft ?

Þegar lífið snýst um að haka í öll boxin gleymum við oft að hlusta á okkur sjálf. Með því að efla meðvitund og styrkja innri kjarnann færðu aftur tengingu við það sem veitir þér gleði og dýpri tilgang – án þess að þurfa að yfirgefa núverandi líf eða breyta öllu. 

-02-
Viltu finna meiri ró og jafnvægi innra með þér?

Streita og spenna byggjast oft upp án þess að við áttum okkur á því. Í þessu námskeiði lærir þú hagnýtar aðferðir til að róa taugakerfið, vinna með hugsanir sem valda spennu og skapa innri frið sem fylgir þér – líka þegar lífið er krefjandi.

-03-
Viltu rækta fleiri augnablik gleði og léttleika?

Við missum tenginguna við gleðina þegar álag og sjálfsefi taka yfir. Með því að þjálfa hugann í að veita jákvæðum augnablikum athygli – og leyfa þér að njóta þeirra – skapar þú meira pláss fyrir hlátur, léttleika og dýpri tengsl. Það eru þessir smáu hlutir sem umbreyta líðan þinni – og þú getur lært að rækta þá meðvitað.

 

Lífið býður upp á meira!!!
Þetta er þitt tækifæri !
Já takk! Ég er tilbúin.

Vellíðan í starfi byrjar innra með þér – og smitast út í allt sem þú gerir. Þegar okkur líður vel í vinnunni þá er.....

 

  • Allt að 8 sinnum meiri virkni
  • Allt að 3 x meiri afköst 
  • Allt að 32% minna tjón
  • Allt að 30% færri veikindaleyfi
  • Allt að 4 x minni líkur á að þú hættir í vinnunni

Þegar þú finnur innri ró, skýrleika og tilgang skilar það sér í vinnudeginum þínum. Þú mætir með orku, ert til staðar, nærð að njóta þess sem þú gerir og tengjast öðrum á dýpri hátt.

Þetta námskeið hjálpar þér að rækta þá líðan sem skilar sér í meiri vellíðan í starfi, betri samskiptum og raunverulegri starfsánægju.

Athugaðu hvort að vinnuveitandi þinn eða stéttarfélag styrki þig í að sækja þetta námskeið!

Skoðaðu málið 
Allir græða á því !
Placeholder Image

Ímyndaðu þér að...

  • finna  ró innra með þér – jafnvel þegar allt í kringum þig er á ferð og flugi.

  • rækta meiri gleði og þakklæti í hversdagsleikanum – án þess að þurfa að breyta öllu.

  • tengjast sjálfri/sjálfum þér á ný – og dýpka tengslin við fólkið sem skiptir þig máli.

  • standa í eigin styrkleikum og lifa í takt við það sem raunverulega hefur gildi fyrir þig.

  • finna orkuna kvikna innan frá – ekki bara þegar listinn er kláraður, heldur þegar þú ert vel tengd/ur þínum innri drifkrafti.

     

    Þú ert einni ákvörðun frá þessu... 

  • Að loknu þessu námskeiði í jákvæðri sálfræði munt þú ekki aðeins skilja hvað vellíðan er – heldur upplifa hana í eigin lífi.

  • Þú lærir aðferðir sem byggja á rannsóknum og hafa sýnt mælanleg áhrif á líðan, seiglu og hamingju – og lærir að innleiða þær á þínum eigin forsendum.

  • Þú öðlast aukinn skilning á sjálfri/sjálfum þér, lærir að hlúa að eigin orku og styrk og þróar með þér einfaldar en öflugar leiðir til að rækta jákvæðar tilfinningar eins og þakklæti, gleði og von.

  • Þú dýpkar tengsl – bæði við sjálfa(n) þig og aðra – og byrjar að lifa í samræmi við þín gildi, ekki endalausa verkefnalista.

  • Með því að virkja styrkleika þína og skapa flæði í því sem þú gerir, finnur þú meiri innri drifkraft og tilgang.

Já, ég vil þetta fyrir mig!
Placeholder Image

Þetta nýtist þér líka í vinnunni...

 

#1- Þetta er fyrir þig sem manneskju – og sem fagaðila

Ef þú vinnur með fólki, leiðir aðra eða berð ábyrgð í krefjandi umhverfi,getur þetta námskeið veitt þér dýrmæt verkfæri – bæði persónulega og faglega.

  

#2- Þú getur ekki hellt úr tómu glasi

Þú lærir að rækta þína eigin vellíðan, orku og sjálfsumhyggju – svo þú getir mætt öðrum af heilindum og styrk.

 

#3- Þú dýpkar þekkingu þína á jákvæðri sálfræði og notkun hennar í starfi

Þú færð fræðilegan grunn og hagnýtar leiðir sem nýtast í kennslu, leiðtogahlutverki, hópastarfi, handleiðslu og í öllum mannlegum samskiptum.

 

#4- Þú styrkir tengsl og samskipti í starfi

Með aukinni meðvitund um jákvæðar tilfinningar, styrkleika og merkingu byggir þú sterkari tengsl við samstarfsfólk og skjólstæðinga – og býrð til heilbrigðara vinnuumhverfi.

 

#5- Þú færð rými fyrir eigin vöxt og innri festu

Í starfi þar sem þú ert alltaf að gefa af þér, er dýrmætt að eignast stað og tíma þar sem þú færð að læra sem  manneskja – ekki bara fagmaður.

 

Er þetta eitthvað fyrir þig?

 

Fyrir þig ef þú:

  • Ert orðin þreytt(ur) á að vera stöðugt að gefa – en finnur að þú þarft að næra þig sjálfa(n).
  • Ert farin að spyrja þig: „Er þetta allt sem lífið hefur upp á að bjóða?“ og vilt eitthvað meira – dýpra.
  • Ert tilbúin(n) að rækta styrkleika þína í stað þess að vera föst/fastur í því sem „vantar“ hjá þér
  • Hefur áhuga á jákvæðri sálfræði og innri vexti – og vilt læra hvernig þú getur notað þetta í raunveruleikanum.

Ekki fyrir þig ef:

  • Þú vilt töfralausn án þess að staldra við eða horfa inn á við.
  • Þú hefur engan áhuga á persónulegum vexti eða kanna hvað gefur lífi þínu gildi.
  • Þú ert ekki reiðubúin(n) að gefa þér tíma og rými til að hlúa að þér.
  • Þú ert ekki tilbúin(n) að skoða eigin hugsanir, tilfinningar og venjur. 
  • Þú ert ekki tilbúin(n) að læra nýja hluti, nálgun og aðferðir.
Ég er til í þetta
Placeholder Image

Námskeiðið hefst þann 5. maí 2025


Hvað er innifalið?

-1-

7 skipti á Zoom

Sjö skipti þar sem við hittumst á Zoom í eina og hálfa klukkustund. Klukkutími fer í að fara yfir efnið og svo 30 mínútur í lokin fyrir þá sem vilja spyrja og spjalla.

-2-

Vinnubók

Virkilega vegleg vinnubók og efni sem þú getur nýtt þér það sem eftir er ævinnar. Fræðsla og verkefni sem styðja þig í þessari vegferð. 

-3-

Upptökur af efni

Þú færð aðgang að upptökum af hverjum tíma fyrir sig, þannig að ef þú missir af tíma þá getur þú horft eftir á.

-4-

Facebook stuðningshópur

Þú færð aðgang að lokuðum facebook hóp þar sem hægt er að spyrja og spjalla og sækja sér stuðning. 

Skrá mig

Skoðum innihaldið

 

 

1 - Vellíðan 101

Inngangur að jákvæðri sálfræði og skilningur á vellíðan – hvað hefur áhrif á hamingju okkar og á hverju getum  við raunverulega haft stjórn á?

 

 2 - Heilbrigðar venjur

Venjur sem styðja við jafnvægi og vellíðan – smá skref sem styðja við vellíðan bæði líkamlega,  andlega og félagslega.

 

3 - Jákvæðar tilfinningar

Af hverju tilfinningar skipta máli og hvernig við getum ræktað meira af þeim jákvæðu í daglegu lífi. 

 

 4 - Styrkleikar og flæði 

Kynnumst eigin styrkleikum og hvernig við getum nýtt þá til að finna tilgang, áhuga og upplifa flæði. 

 

5 - Sambönd og tengsl

Sambönd eru hornsteinn vellíðunar – hér skoðum við samskipti, samkennd og öruggi og hvernig við getum byggt upp heilbrigðari og dýpri tengsl..

 

 6 -Tilgangur og merking

Hvað veitir lífinu merkingu? Hvernig getur lífssýn, trú og gildi mótað leiðina okkar áfram? Við skoðum leiðir til að tengjast dýpri tilgangi og upplifa merkingu í starfi og einkalífi.

 

 7 - Árangur og seigla 

Lærum að setja markmið, fylgja eftir breytingum og efla seiglu. Hvernig byggjum við upp sjálfstraust og trú á eigin getu? Hér tengjum við saman alla þættina og skoðum næstu skref í eigin lífsstefnu.

 

Aukaefni og stuðningur 

Stofnaður verður lokaður facebook hópur sem hægt er að setja inn spurningar og vangaveltur á milli tíma. 

Hvað gerir þetta námskeið fyrir þig?

 
  • Þetta er ekki bara fræðsla – þetta er innri vegferð sem gefur þér verkfæri, innsýn og stuðning til að lifa meira í takt við það sem raunverulega skiptir þig máli.
  • Þú lærir aðferðir sem hafa verið rannsakaðar í jákvæðri sálfræði og hafa sýnt mælanleg áhrif á líðan, seiglu og hamingju.
  • Þú þarft ekki að umbylta lífinu til að upplifa breytingar. Smáar venjur og einfaldar æfingar geta haft djúp áhrif.
Já, ég er tilbúin(n) – skrá mig núna
Placeholder Image

Þarftu nokkuð að bíða?

Námskeiðið hefst þann 5. maí 2025.
Kennt er á mánudögum frá 17.00-18:30

Skráðu þig núna!

Það er kynningarverð í gangi í vor!

 

 

 

Kynningarverð!

34.900 ISK

Eingreiðsla
Námskeið hefst þann 5. maí

  • Zoom fundir í 7 skipti
  • Upptökur af öllu efni aðgengliegt í 6 mánuði.
  • Ítarlegar vinnubækur og verkefni
  • Lokaður Facebook hópur til stuðnings.
Skrá mig í dag!

Um mig ...

 

Ég heiti Hugrún Linda Guðmundsdóttir og ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að tengjast sjálfu sér, finna innri styrk og lifa í samræmi við eigin gildi.

Ég er menntaður félagsráðgjafi vottaður markþjálfi, kennari í núvitund og jóga, með sérmenntun í jákvæðri sálfræði og streitustjórnun. Ég hef unnið með fjölda fólks í gegnum árin – bæði í heilbrigðiskerfinu og í einkarekstri – sem hefur glímt við streitu, kulnun  aðrar lífskreppur og tilfinningu um að vera fast í eigin lífi.

Ég sameina vísindalega þekkingu úr vestrænni sálfræði við visku og aðferðir úr austurlenskum fræðum. Ég veit að raunveruleg umbreyting gerist ekki í gegnum orð á skjá, heldur í gegnum reynslu.
Þess vegna er þetta námskeið byggt þannig að þú færð tækifæri til að upplifa og skynja – ekki bara „læra“.

Ég mun leiða þig skref fyrir skref í átt að meiri ró, orku og gleði – með hagnýtum aðferðum sem þú getur tekið með þér inn í daglegt líf.

 

Placeholder Image

Algengar spurningar

Placeholder Image

Þarftu nokkuð að bíða?

Skráðu þig núna!

Það er kynningarverð í gangi í vor!

 

 

 

Kynningarverð!

34.900 ISK

Eingreiðsla
Námskeið hefst þann 5. maí

  • Zoom fundir í 7 skipti
  • Upptökur af öllu efni aðgengliegt í 6 mánuði.
  • Ítarlegar vinnubækur og verkefni
  • Lokaður Facebook hópur til stuðnings.
Skrá mig í dag!