OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR

Aukin sjálfsvitund og meira sjálfstraust

STEFNUMÓTUN Í EIGIN LÍFI.

FRÆÐSLA - MARKÞJÁLFUN - STUÐNINGUR OG HVATNING
8 HÓPTÍMAR

Ertu á krossgötum?
 

Á tímamótum vaknar oft þörf fyrir að staldra við, endurskoða forgangsröðun og endurskipuleggja lífið með meiri meðvitund og skýrleika.

Námskeiðið styður þig í að endurtengjast sjálfum þér, verða skýrari um styrkleika þína, gildi, getu og vilja og móta nýja, raunhæfa framtíðarsýn – hvort sem hún snýr að vinnu, heilsu, samböndum eða einkalífi.

Þetta er fyrir þig sem vilt hætta að vera á „sjálfstýringu“ og byrja að taka meðvitaðar ákvarðanir um stefnu þína í lífi og starfi. 

 

Næsta námskeið  17. mars 2026

Staður og stund

Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9:30–11:30
Námskeiðið er samtals 8 skipti

Vegna páska er kennt 17-19-24-26. mars og 9-14-16-21. apríl.

Kennt í húsnæði Heilsuverndar Urðarhvarfi 14 - 3. hæð.

Verð 82.800 

Athugið styrk frá stéttarfélagi eða VIRK

Námskeiðið hentar þér ef þú: 

 

  • stendur á krossgötum í lífinu og finnur fyrir óvissu um næstu skref

  • ert að jafna þig eftir streitu, veikindi, áföll eða kulnun og vilt byggja lífið upp á nýjan hátt

  • upplifir að þú sért föst/fastur í sama farinu og þráir meiri skýrleika og tilgang

  • finnur að þú lifir mikið í „sjálfstýringu“ en vilt taka meðvitaða stjórn á lífi þínu

  • vilt endurskoða forgangsröðun, vinnu– jafnvægi og lífsstíl

  • hefur áhuga á persónulegum vexti, sjálfsþekkingu og vellíðan

  • vilt styrkja þig sálrænt, félagslega og líkamlega til framtíðar

Þetta námskeið hentar bæði þeim sem vilja gera róttækar breytingar og þeim sem vilja fínstilla líf sitt til að upplifa meiri jafnvægi, gleði og tilgang. 

Að námskeiði loknu getur þú búist við að:

  • hafa skýrari sýn á það sem skiptir þig mestu máli í lífinu

  • skilja betur þín eigin gildi, þarfir og langanir

  • vera með persónulega stefnumótun fyrir framtíðina

  • hafa meiri meðvitund um styrkleika þína og hvernig þú getur nýtt þá

  • upplifa aukna sjálfsvitund, sjálfstraust og sjálfsumhyggju

  • hafa betri yfirsýn yfir tíma, orku og forgangsröðun

  • þekkja betur hvaða hugsanir, venjur eða ótti halda aftur af þér – og hvernig þú getur unnið með það

  • upplifa meiri jafnvægi milli vinnu, einkalífs, samskipta og eigin líðan

  • finna meiri innri ró, tilgang og stefnu í daglegu lífi

Þú ferð ekki bara með hugmyndir – heldur með verkfæri, innsýn og áætlun sem þú getur strax byrjað að nota.

Ertu með spurningu eða viltu skrá þig?

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningar eða viltu skrá þig?
Sendu mér skilaboð í formið hér að neðan og ég svara eins fljótt og auðið er..

Ég reyni að svara eins fljótt og auðið er.

 

Um námskeiðið

Markþjálfun og  jákvæð sálfræði er grunnurinn að þessu námskeiði. Við skoðum hvað hefur áhrif á að lífið gangi vel og hvað hefur áhrif á vellíðan og velgengni í lífinu. Við skoðum hvernig hægt er að auka þessa jákvæðu þætti og blanda þeim inn í daglegt líf til að styrkja okkur enn frekar á lífsins leið. 


Fyrirkomulag:

Við notum  aðferð markþjálfunar til að leiða þig áfram í gegnum verkefni sem vekja þig til umhugsunar um það sem skiptir þig mestu máli í lífinu og hvernig þú vilt forgangsraða í framtíðinni.        

Þú gerir stöðuskýrslu á þínu lífi sem snýr að sálrænum, félagslegum og líkamlegum þáttum.

Fjallað verður um lífsgildi, lífsmáta og drifkraft – Hvað er það sem drífur þig áfram?

Þú færð tækifæri til að greina styrkleika þína og færð hugmyndir um hvernig þeir geta  nýst þér til framtíðar í lífi og starfi.

Fjallað verður um mikilvægi samskipta og sambanda við annað fólk, hlutverk þín, skyldur og ábyrgð.

Við förum í tímanotkun, markmiðasetningu, skipulagningu og framtíðarsýn.

Við skoðum það sem hindrar framgang og heldur okkur föstum í gömlum venjum,  hugsunum og hegðun.

 Meðvituð ákvörðun um hvernig þú vilt lifa þínu lífi!

Aðferðafræði námskeiðsins.

Námskeiðið byggir á markþjálfun og jákvæðri sálfræði með áherslu á vellíðan, styrkleika og lausnamiðaða nálgun.
Unnið er með núvitund og ACT til að styðja við skýrleika, sjálfsvitund og raunverulegar breytingar í daglegu lífi. 

Markþjálfun með nálgun jákvæðrar sálfræði (positive psychology coaching - PPC) á rætur sínar að rekja til vísindalegrar nálgunar á að aðstoða fólk við að auka vellíðan, finna og nýta styrkleika sína, auka árangur og ná markmiðum í samræmi við gildi sín, styrkleika, vonir og væntingar.

Í ferlinu er lögð áhersla á leiðir til að komast yfir hindranir til að hver og einn geti blómstrað í sínu lífi, upplifað sátt, jafnvægi og vellíðan.

 

Taktu þátt ef þú vilt:

  • hætta að lifa lífinu á „sjálfstýringu“ og byrja að lifa meðvitað

  • taka virkan þátt í að móta þína eigin framtíð

  • byggja líf sem samræmist gildum þínum, ekki bara kröfum umhverfisins

  • styrkja þig innra með þér og verða seigari gagnvart álagi og áskorunum

  • læra að sjá tækifæri í stað hindrana

  • skapa meira jafnvægi, gleði og merkingu í daglegu lífi

Þetta námskeið er boð um að staldra við, anda, horfa inn á við og velja meðvitað næstu skref á lífsleiðinni.

Þetta er ekki bara fræðsla – heldur ferðalag inn á við sem styður þig til að lifa heilsueflandi, markvissara og innihaldsríkara lífi.

Leiðbeinandinn þinn.

Hugrún Linda Guðmundsdóttir - Félagsráðgjafi með meistararéttindi og starfsréttindi frá Landlækni. Hún hefur lokið diplómanámi í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun auk þess að vera vottaður markþjálfi. 

Hugrún hefur unnið síðustu 12 ár með fólki sem er að ganga í gegnum breytingar eða lífskreppur og þarf að móta nýja framtíðarsýn hvort sem er í einkalífi eða starfi. Einnig með fólki sem glímir við streitu og þarf að læra að staldra við og skoða lífið frá öðru sjónarhorni, huga að andlegri heilsu og almennri vellíðan. Hugrún hefur kennt þetta námskeið í 11 ár með breytingum þó. Meðal annars fyrir VIRK og einstaklinga sem staddir eru á krossgötum.

Hugrún er með stofu hjá Heilsuvernd og tekur þar á móti fólki.  Hún vinnur með þætti eins og álag, streitu og kulnun, ýmsa erfiðleika, lífskreppur, vinnutengda þætti, sjálfseflingu og þætti til að auka lífsgæði, gleði, orku, hamingju og vellíðan. 

Ertu með spurningu eða vantar aðstoð?

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningar eða viltu skrá þig?
Sendu mér skilaboð í formið hér að neðan og ég svara eins fljótt og auðið er..

Ég reyni að svara eins fljótt og auðið er.