GRUNNUR AÐ VELLÍÐAN Í VINNU

 

Heilsan, streitan og taugakerfið

Við kynnum nýtt úrræði!

Markviss, fagleg, rafræn fræðsla fyrir stjórnendur og starfsfólk um streitu, álag og seiglu í starfi. 

100% rafrænt og aðgengilegt STRAX 

 

Vellíðan og jafnvægi í lífi og starfi

Af hverju skiptir þetta máli fyrir vinnustaði? 

Álagstengd vanlíðan, veikindi og kulnun eru meðal algengustu ástæðna veikindafjarveru á vinnumarkaði.

60 - 80% af heimsóknum til lækna tengjast streitutengdum þáttum.

Rannsóknir frá Svíþjóð sýna að kostnaður samfélagsins vegna veikindafjarveru er sambærilegur við kostnaðinn við að reka menntakerfið eða herinn.

Hér á Íslandi liggja ekki fyrir jafn nákvæmar tölur, en það er ljóst að:

  • Kostnaður vegna veikindaleyfa er gríðarlegur
  • Tap á þekkingu og mannauði hefur langvarandi áhrif á fyrirtæki
  • Kulnun og brottfall úr starfi eru dýr bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.  

Hver króna sem fer í forvarnir skilar sér fjórfalt til baka. 

 

Fagleg netfræðsla

Í þessari netfræðslu fær starfsfólk vísindalega studda þekkingu um hvernig streita hefur áhrif á líkama, huga og taugakerfi – og hvað við getum gert til að fyrirbyggja álagstengda vanlíðan, veikindi og kulnun.

Markmiðið er að styrkja bæði einstaklinga og vinnustaði með betri skilningi, skýrari verkfærum og raunhæfum leiðum til að stuðla að heilsu, jafnvægi og sjálfbærni í starfi.

Þetta er blanda af fræðslu, sjálfsmati og verkefnum sem tryggir að námskeiðið er ekki bara fræðandi – heldur raunverulega umbreytandi. Starfsfólk lærir ekki aðeins um streitu heldur fær tækifæri til að vinna með hana á markvissan og persónulegan hátt. 

Ávinningur fyrir starfsmanninn

Með þessari netfræðslu fær starfsmaðurinn:

  • Betri skilning á eigin streituviðbrögðum og taugakerfi

  • Aukna sjálfsvitund um álag, mörk og orku

  • Hagnýt verkfæri til að takast á við streitu í daglegu lífi og starfi

  • Meiri seiglu gagnvart álagi og breytingum

  • Betri getu til að forgangsraða og passa upp á eigin heilsu

  • Minni líkur á kulnun og langvarandi streitutengdum einkennum

  • Aukna vellíðan, ró og jafnvægi – bæði í vinnu og einkalífi

  • Tækifæri til að læra á sínum hraða með 12 mánaða aðgangi að kennsluvef

  • Aðgang að matslistum og verkefnum sem styðja persónulega ígrundun og þróun

Niðurstaðan:
Sterkari, meðvitaðri og betur í stakk búinn starfsmaður sem finnur meiri stjórn yfir eigin líðan og starfsorku.

Ávinningur fyrir vinnustaðinn

Fyrir fyrirtæki og stofnanir skilar fræðslan sér í:

  • Minni veikindafjarveru tengdri streitu og kulnun

  • Betri líðan og starfsánægju innan teymis

  • Meiri afköstum og gæðum í starfi

  • Sterkari vinnumenningu þar sem heilsa er tekin alvarlega

  • Minni starfsmannaveltu og minna tapi á þekkingu

  • Betri samskiptum og samvinnu á vinnustað

  • Fyrirbyggjandi nálgun í stað viðbragða við vanda

  • Fjárhagslegum ávinningi – þar sem hver króna í forvörnum skilar sér margfalt til baka

Niðurstaðan:
Heilbrigðari vinnustaður, ánægðara starfsfólk, betri árangur og lægri kostnaður vegna streitutengdra vandamála.

Ertu með spurningu ?

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningar eða viltu fá aðgang að fræðslunni?
Sendu okkur póst:

Sigrún Sigurðardóttir - Verkefnastjóri Heilsuverndar- [email protected] 

Hugrún Linda Guðmundsdóttir - Félagsráðgjafi og stjórnandi námskeiðs - [email protected]

 

 

Hvernig er aðgengi og fyrirkomulag?

Þátttakendur fá persónulegan aðgang að kennsluvef þar sem allt efnið er aðgengilegt á einum stað

Þú getur unnið með efnið:

  • Á þínum forsendum og á þínum hraða
  • Þegar það hentar þér – heima, í vinnunni eða á ferðinni
  • Á þann hátt sem styður þig 

Aðgangurinn gildir í 12 mánuði, svo þú getur farið aftur yfir efnið eftir þörfum – til að rifja upp, dýpka skilning eða tengja við nýjar aðstæður í starfi og lífi.  

Í fræðslunni færðu:

  • Útskýringar á hugtökum eins og streitu, vinnustreitu og kulnun
  • Skýran skilning á streituviðbrögðum líkamans
  • Innsýn í hvernig taugakerfið bregst við álagi
  • Þekkingu á hvernig streita getur þróast yfir í kulnun

  • Hagnýt verkfæri til að stýra streitu betur í daglegu lífi og starfi

  • Leiðir til að styrkja seiglu og vellíðan til lengri tíma

Aðgangur að faglegum stuðningi

Eftir fræðsluna er mögulegt að fá áframhaldandi aðgang að faglegri ráðgjöf, stuðningi og handleiðslu – annað hvort fyrir einstaklinga eða teymi – ef þess er óskað.

Leiðbeinandinn þinn.

 

Hugrún Linda Guðmundsdóttir - Félagsráðgjafi með meistararéttindi og starfsréttindi frá Landlækni. Hún hefur lokið diplómanámi í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun auk þess að vera vottaður markþjálfi. Hún hefur sérhæft sig í streitustjórnun og seigluþjálfun og kennir aðferðir byggðar á Mind Body Medicine hugmyndafræðinni frá Harvard Medical School og Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine. Auk þess er hún núvitundar- og Jóga Nidra kennari.

Hugrún er með stofu hjá Heilsuernd og tekur þar á móti fólki.  Hún vinnur með þætti eins og álag, streitu og kulnun, ýmsa erfiðleika, lífskreppur, vinnutengda þætti, sjálfseflingu og þætti til að auka lífsgæði, gleði, orku, hamingju og vellíðan. Hún hefur starfað sjálfstætt sem ráðgjafi, markþjálfi og kennari, er úrræðaaðili hjá VIRK, hefur starfað í geðheilsuteymi og sem handleiðari fyrir stjórnendur og fagfólk. Áður sinnti hún mannauðsmálum og rekstri í viðskiptalífinu og hef einnig verið hluti af áfalla- og neyðarteymi Rauða krossins.

Verð og virði

Kostnaður námskeiðsins er á pari við einn tíma í einstaklingsráðgjöf – en virðið felst í því að starfsmaðurinn fær:

  • Vísindalega þekkingu byggða á traustum grunni

  • Hagnýt verkfæri

  • Sjálfseflingu

  • Betri skilning á eigin streitu

  • Sterkari grunn fyrir heilsu og jafnvægi til framtíðar

Ertu með spurningu ?

HAFÐU SAMBAND

Ertu með spurningar eða viltu fá aðgang að fræðslunni?
Sendu okkur póst:

Sigrún Sigurðardóttir - Verkefnastjóri Heilsuverndar - [email protected] 

Hugrún Linda Guðmundsdóttir - Félagsráðgjafi og stjórnandi námskeiðs - [email protected]