Heilsan Streitan og Taugakerfið

Netnámskeið · 12 mánaða aðgangur

Líkaminn veit...
áður en þú gerir það.

Lærðu að þekkja merkin, skilja taugakerfið og bregðast við áður en streitan tekur yfir.

Fá aðgang — 19.900 kr.

Eingreiðsla · 12 mánaða aðgangur · Vinnur á eigin hraða

Þekkir þú þetta?

Þú heldur alltaf áfram.
Líkaminn fylgir þreyttur og streittur...

Þú sinnir skyldum þínum. Þú reddar þér. Á yfirborðinu lítur allt vel út. En innra með þér er eitthvað sem hvílir aldrei alveg.

Svefninn er lélegur. Orkulaus. Þú ert alltaf í viðbragðsstöðu. Þú veltir einni hugsun yfir í þá næstu og kemst ekki af þínum eigin forsendum.

Þetta er ekki veikleiki. Þetta er taugakerfið þitt í viðbragðsstöðu — og það hefur verið þar of lengi.


60–80%

af heimsóknum til lækna eru tengdar streitu og álagi á einhvern hátt.

Flestir sækja sér aðstoð of seint.

Er þetta fyrir þig?

Þetta námskeið er fyrir þig sem:

  • Finnur fyrir viðvarandi streitu eða þreytu — jafnvel þótt „allt sé í lagi"
  • Ber mikla ábyrgð í starfi og vilt ekki detta út
  • Hefur reynt „að slaka bara á" — og það virkar ekki
  • Vilt skilja hvað er í raun að gerast í líkamanum
  • Vilt grípa inn í áður en líkaminn neyðir þig til að stoppa

Innihald námskeiðs

Þrjár lotur. Einn skýr grunnur.

Námskeiðið er byggt upp í stuttar, hnitmiðaðar einingar sem þú vinnur á eigin hraða.

Lota 01

Streita, vinnustreita og kulnun

Hvað streita er í raun — hvernig hún birtist í líkama og huga, hvernig hún þróast yfir í langvarandi ástand, og hvernig þú þekkir viðvörunarmerkin áður en þau verða alvarleg.

Lota 02

Taugakerfið og viðbrögð líkamans

Hvernig taugakerfið bregst við álagi — hvers vegna „að slaka bara á" dugir oft ekki, og hvernig þú byrjar að vinna með líkama og huga í stað þess að berjast á móti.

Lota 03

Verkfærakista og bjargráð

Hagnýtar, rannsóknamiðaðar aðferðir til að efla seiglu og álagsþol — sem þú getur byrjað að nota strax og aðlagað að eigin lífi og starfi.


Þátttakendur segja frá

Hvað segja þau?

✦ Þetta er virkilega vandað, gott og gagnlegt námskeið og kennarinn er frábær, fínir tímar og afskaplega gagnlegar æfingar. Námskeiðið hjálpaði mér að átta mig mikið betur á mínum álagsvöldum og streitueinkennum og það kynnti mig fyrir ýmsum bjargráðum sem ég þekkti ekkert til áður….Mér líður dálítið eins og ég hafi týnst á hálendinu og Hugrún hafi gefið mér útilegubúnað, gönguskó og áttavita. Ég mæli hjartanlega með þessu námskeiðinu fyrir aðra í mínum sporum. ✦

Valdi

✦ Ég finn heilmikinn mun á mér eftir að hafa verið í úrræðinu hjá þér. Mér leið mjög illa þegar ég mætti til þín fyrst var að glíma við mikla streitu og var á hraðri leið í kulnun. Nú líður mér mun betur, Mér finnst ég hafa meiri stjórn á hlutunum og ég hef verkfæri sem ég get nýtt mér til að líða betur eins og Jóga Nidra, öndun, sjálfsumhyggju og gildin mín. Ég er með allt efnið og get hlustað á fyrirlestrana aftur ef ég þarf á að halda. Takk fyrir mig ♥️ ✦

Þórey

Hugrún Linda
Um kennara

Hugrún Linda

Ég hef unnið með fólki í álagstengdum veikindum í mörg ár — bæði einstaklingum sem eru að finna fyrir fyrstu einkennum og þeim sem hafa glímt við langvarandi álag.

Reynslan hefur sýnt mér eitt og annað en það sem kemur oftast upp er að: Fólk leitar sér aðstoðar allt of seint. Þess vegna bjó ég til þetta námskeið. .

  • Félagsráðgjafi með meistararéttindi — starfsréttindi frá Landlækni
  • Sérfræðingur í streitustjórnun og Mind Body Medicine, Harvard Medical School / Benson-Henry Institute
  • Diplómanám í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun
  • Vottaður markþjálfi og Jóga Nidra kennari
Skráning

Heilsan – Streitan og Taugakerfið

19.900 kr.

Eingreiðsla · Aðgangur strax · 12 mánuðir

  • 3 lotur — fræðsla og hagnýt verkfæri
  • Verkefni og æfingar með hverri lotu
  • Aðgangur að öllu efni í 12 mánuði
  • BÓNUS: 8 Yoga Nidra djúpslökunarhugleiðslur
Fá aðgang strax

Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið. Kannaðu rétt þinn á endurgreiðslu hjá þínu stéttarfélagi.

Algengar spurningar

Spurningar og svör

Þarf ég að vera kominn/n með alvarleg einkenni?

Nei. Námskeiðið er einnig fyrirbyggjandi — fyrir þá sem vilja bregðast við snemma og þekkja rauðu ljósin áður en líkaminn neyðir þig til að stoppa.

Hversu langan tíma þarf ég?

Þú vinnur efnið á eigin hraða. Hver fyrirlestur er stuttur og hægt að skipta upp. Þú færð aðgang í 12 mánuði og getur horft aftur og aftur.

Er þetta meðferð eða lækning?

Nei. Þetta er fræðslumiðað námskeið byggt á rannsóknum og Mind Body nálgun. Það kemur ekki í stað læknis- eða sálrænnar meðferðar en getur verið mikilvæg viðbót.

Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna
þá er kominn tími til að skoða forgangsröðun í þínu lífi.

Skrá mig — 19.900 kr.

Aðgangur strax. Engin áhætta. Þú ræður hraðanum.