FRÍTT 4 DAGA
ÖRNÁMSKEIÐ

Staldraðu við… áður en þú keyrir þig út

Lærðu einfaldar og sannreyndar leiðir til að róa taugakerfið, draga úr streitu og finna meira jafnvægi í dagsins önn á aðeins 5–10 mínútum á dag.

Kannast þú við þetta?

Þú nærð þér aldrei almennilega niður

Það er alltaf eitthvað sem þarf að klára, laga, muna eða sinna. Hugurinn er stöðugt í gangi jafnvel þegar líkaminn er orðinn þreyttur.

Þú ert stöðugt að gera en nærð sjaldan að „vera“

Dagarnir líða hratt, verkefnin taka við hvert af öðru og einhvers staðar á leiðinni hefur þú misst tenginguna við sjálfa/n þig.

Líkaminn er farinn að senda skilaboð

Þreyta. Spenna. Pirringur. Svefnvandamál. Andleg þoka. Erfiðleikar með að slaka á eða taka skýrar ákvarðanir.

Þú veist að eitthvað þarf að breytast en veist ekki hvar þú átt að byrja

Og kannski hefur þú sagt við sjálfa/n þig: „Ég þarf bara að komast í gegnum þetta fyrst.“

Streita byggist sjaldnast upp á einni nóttu. Jafnvægi kemur ekki heldur af sjálfu sér.

Í þessu 4 daga örnámskeiði lærir þú einfaldar og gagnreyndar leiðir til að:

Draga úr áhrifum streitu á líkama og huga

Virkja slökunarviðbragð líkamans og róa taugakerfið

Auka meðvitund og sjálfsþekkingu

Takast á við álag af meiri ró og skýrleika

Finna leiðir til að staldra við áður en líkaminn neyðir þig til þess

📅 Fjórir dagar
⏱ 5–10 mínútur á dag
◎ Einföld og aðgengileg skref sem þú getur nýtt strax

Fáðu aðgang alveg frítt

Skráðu nafn og netfang hér fyrir neðan og ég sendi þér fyrsta daginn strax.

Enginn ruslpóstur. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Hugrún Linda
Um mig

Hæ, ég er Hugrún Linda

Ég hjálpa fólki að finna meira jafnvægi, innri styrk og vellíðan í lífi og starfi.

Í gegnum árin hef ég unnið með einstaklingum, hópum og fyrirtækjum að streitustjórnun, seiglu og andlegri heilsu bæði í einkatímum, námskeiðum og fræðslu.

Ég sameina vísindalega þekkingu og mannlega nálgun þar sem áherslan er ekki á að gera meira heldur að skilja betur hvað líkaminn, hugurinn og taugakerfið eru að reyna að segja okkur.

Í minni vinnu fléttast saman markþjálfun, jákvæð sálfræði, ACT, núvitund og Mind Body Medicine ásamt áralangri reynslu af því að styðja fólk í gegnum streitu, álag og breytingar.

Markmið mitt er að hjálpa þér að lifa vel. Ekki bara að komast í gegnum daginn.

Tilbúin/n að taka fyrsta skrefið?

Þú þarft ekki að breyta öllu í einu.
Stundum byrjar breytingin einfaldlega á því að staldra við.

Já, ég vil fá aðgang — frítt