Streita,
vinnustreita og
kulnun
Fræðsla og spurningar sem hjálpa þér að skoða hvernig streita og álag eru að hafa áhrif á þig í lífi og starfi.
Fáðu betri yfirsýn yfir eigin stöðu og skoðaðu hvar álagið virðist helst vera að koma fram.
FÁ STREITUSKIMUNINA FRÍTTSkimunin er ekki formleg greining heldur hjálpartæki til að skoða streitu og álag.
Við venjumst oft meira álagi en við gerum okkur grein fyrir.
Maður heldur áfram að vinna, sinna skyldum og komast í gegnum daginn en tekur kannski ekki almennilega eftir því að orkan er minni, þreytan meiri eða að það er orðið erfiðara að ná sér niður.
Streita getur komið fram á ólíkan hátt. Hún getur verið líkamleg, tilfinningaleg, tengst vinnunni, samskiptum eða því að maður finnur að jafnvægið og ánægjan eru ekki alveg þau sömu og áður.
Streituskimunin hjálpar þér að skoða þessa þætti aðeins betur og sjá hvar álagið virðist helst vera að koma fram hjá þér.
Skoðaðu hvar álagið er helst að koma fram
Skimunin fer yfir sjö ólíka þætti sem geta gefið vísbendingu um hvernig streita og álag eru að hafa áhrif á líkamlega líðan, vinnu, tengsl og lífsánægju.
Líkamleg örmögnun
Þreyta, verkir og líkamleg einkenni sem geta fylgt langvarandi álagi.
Andleg / tilfinningaleg örmögnun
Tilfinningalegt álag, orkuleysi og erfiðleikar með að halda ró þegar mikið gengur á.
Vinnutengd streita
Álag, tímaþröng, ábyrgð og þrýstingur sem tengist starfi.
Væntingar og gildi
Hvort vinna og lífsstíll séu í takt við það sem skiptir þig máli.
Skert starfsgeta
Sjálfstraust í starfi, afköst og tilfinningin fyrir eigin hæfni.
Félagsleg einangrun
Hvort álag sé farið að hafa áhrif á tengsl við vini, fjölskyldu og aðra.
Lífsánægja
Jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvort þú upplifir sömu gleði og ánægju og áður.
Af hverju bjó ég þetta til?
Í vinnu minni með streitu hef ég séð hvað fólk getur gengið lengi með einkenni áður en það áttar sig á hversu mikil áhrif álagið er farið að hafa.
Ég hef því mikinn áhuga á forvörnum og að fólk fái fræðslu og stuðning fyrr í ferlinu. Streituskimunin er einföld leið til að staldra við og skoða stöðuna aðeins betur.
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
Félagsráðgjafi MA · Handleiðari · Markþjálfi · Streituráðgjöf
Fáðu streituskimunina senda í tölvupósti
Skimunin er ekki formleg greining.