FRÆÐSLUEFNI

Taktu stjórn á eigin lífi jákvæð sálfræði markþjálfun streita Feb 05, 2026

Hefur þú velt fyrir þér hvað það er sem skiptir þig mestu máli í lífinu? Hefur þú velt því fyrir þér hver ber ábyrgð á hamingju þinni og vellíðan, heilsu þinni og hugarfari?

Oft erum við að bíða eftir að eitthvað verði betra eða eitthvað breytist og lagist til að við getum orðið hamingjusöm eða okkur fari að líða betur. Eða þá að við ætlum að hafa allt svo fullkomið þegar við förum í fríið eða á eftirlaunin, þá ætlum við aldeilis að njóta lífsins.

En oft virðist biðin löng, l

...
Halda áfram að lesa...
Handleiðsla og streitustjórnun handleiðsla streita Feb 05, 2026

Streitustjórnun og handleiðsla – forvarnir fyrir  fólk í álagstörfum

Hugrún Linda Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi MA. Diploma í handleiðslu, jákvæðri sálfræði og mannauðsstjórnun.

Álag í starfi birtist víða en það eru ýmsir þættir sem vega þyngra en aðrir og mismunandi eftir stéttum. Fólk er líka misvel undirbúið til að takast á við álag. Stjórnendur, fólk í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og kennslu og aðrir sem eru í miklum samskiptum upplifa oft á tíðum mikið álag. Þetta fólk er oft drif...

Halda áfram að lesa...
Streitustjórnun og seigla streita Feb 05, 2026

Læknisfræðileg nálgun á tengingu hugar og líkama (Mind – body medicine) byggir á því að venjur, hugsanir, tilfinningar, hegðun og samskipti eru talin hafa mikil áhrif á líkamann og sömuleiðis að líkamleg heilsa hefur áhrif á hugann og andlega heilsu.

Aldagömul viska er til staðar um þessa tengingu en núna eru nútíma vísindi og rannsóknir farnar að sýna fram á skilning á því hvernig þessi tenging virkar og hvernig hægt er að vinna með þessa nálgun til að draga úr líkamlegum og andlegum einkennum...

Halda áfram að lesa...
Streita streita Feb 05, 2026

Streitan kemur fram þegar líkamlegt og andlegt jafnvægi okkar raskast af hugrænum, líffræðilegum eða ytri aðstæðum. Langvarandi streita sem losnar ekki um með þeim aðferðum sem við höfum áður getað nýtt okkur getur leitt til veikinda, kvíða eða depurðar. 

Rannsóknarmennirnir Robert Yekes og JD Dodson gáfu út grein árið 1908 sem lýsti Yerkes-Dodson lögmálinu. Þetta lögmál segir að eftir því sem að álagið á okkur eykst því meira náum við að afkasta, en aðeins upp að ákveðnu marki. Eftir að búið e...

Halda áfram að lesa...
Markþjálfun markþjálfun Feb 05, 2026

Aðferðarfræði markþjálfunar fer einkar vel saman með núvitund og hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði og nýtist vel í vinnu með fólki sem vill blómstra og velta fyrir sér hvað það er sem skiptir í raun og veru máli í þeirra lífi.

Markþjálfun nýtur góðs af jákvæðri sálfræði í gegnum kenningar og gagnreyndar rannsóknir.

Markþjálfunaraðferðin aftur á móti er góð leið til að koma allri þeirri þekkingu sem jákvæða sálfræðin býr yfir í form sem nýtist einstaklingum. Markþjálfun með nálgun jákvæðrar sálf...

Halda áfram að lesa...
Jóga Nidra jóga nidra Feb 05, 2026

Jóga Nidra er ævaforn hugleiðslu og djúpslökunaraðferð sem örvar líffræðilega ferla svefnsins til að fara inn á mörk svefns og vöku.

Oft er talað um „jógískan svefn“ en til að geta sofnað á kvöldin þurfum við fyrst að sleppa tökum á hugsunum okkar og það er nákvæmlega það sem Jóga Nidra gerir, nýtir þennan náttúrulega feril til að aftengja hugsanir okkar og hvílast án þess að sofna.

Jóga Nidra losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Getur hjálpað ...

Halda áfram að lesa...
1 2

FYLGDU MÉR Á SAMFÉLAGSMIÐLUM 

Viltu efla lífsgæði, auka hamingju, upplifa meiri ánægju og gleði og efla vellíðan og velgengi í eigin lifi.

Fáðu ókeypis vinnubókina sem byggir á jákvæðri sálfræði " Grunnur að góðu lífi" senda til þín