Heilsa og starfsorka

Persónulegt stuðningsferli með áherslu á streitustjórnun, endurheimt og seiglu.

Markvisst 8–12 vikna ferli fyrir þig sem finnur fyrir álagi, streitu eða minnkandi starfsorku og vilt bregðast við áður en einkennin verða alvarlegri.

Ferlið sameinar þrjú einstaklingsviðtöl, faglega fræðslu, vinnubók og hagnýt verkfæri sem eru aðlöguð að þinni stöðu og þörfum.

Nánari upplýsingar

ÞÚ ERT MIKILVÆGASTA VERKFÆRIÐ! 

Fyrirlestur fyrir vinnustaði

Að styrkja, vernda og þróa fagmanninn

Í störfum þar sem unnið er með fólki er fagmanneskjan sjálf eitt mikilvægasta verkfærið. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig sjálfsvitund, faglegt öryggi, skýr mörk og góð endurheimt hjálpa fagfólki að varðveita starfsorkuna og sinna krefjandi starfi til lengri tíma.

Fyrirlesturinn er ætlaður vinnustöðum sem vilja efla fagmennsku og vinna markvisst að forvörnum áður en langvarandi álag fer að hafa áhrif á heilsu, samskipti og faglega getu.

40–60 mínútur – fyrir starfsdaga, fræðslufundi og teymi.

Nánari upplýsingar

Heilsan, streitan og taugakerfið 

NETNÁMSKEIÐ - 12 mánaða aðgangur

Þekking og verkfæri fyrir meiri endurheimt og jafnvægi í lífi og starfi.

Í þessu netnámskeiði færðu skýra og aðgengilega fræðslu um streitu, streitustjórnun og seiglu. Fræðslu um tengsl líkama, huga og taugakerfis. Þú lærir að þekkja eigin streitumerki og álagsvalda, skilja viðbrögð þín og nýta hagnýtar leiðir til að mæta álagi og hlúa að heilsunni.

Námskeiðið hentar þér sem vilt taka meðvitaðri skref í átt að meiri ró, starfsorku og vellíðan í daglegu lífi.

Þú vinnur á þínum hraða og hefur aðgang að efninu í 12 mánuði.

SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR

Stefnumótun, markþjálfun og jákvæð sálfræði

Hefst 17.nóvember 2026. FJARNÁMSKEIÐ!

4 vikna þjálfun – Sjálfsþekking og sjálfstyrking til framtíðar

Stefnumótun í eigin lífi byggir á markþjálfun og jákvæðri sálfræði.
Námskeiðið er fyrir þau sem vilja breytingar á einhverjum sviðum í lífinu. 
Þú færð skýrari stefnu, meira sjálfstraust og meiri sátt.

Nánari upplýsingar

Staldraðu við áður en þú keyrir þig út

Ókeypis 4 daga örnámskeið – fjögur skref á fjórum dögum til að rjúfa streituhringinn. 

Finnst þér þú vera stöðugt á hlaupum, með hugann fullan af verkefnum og erfitt að slaka á?

Langvarandi álag getur haft áhrif á heilsu, líðan og starfsorku. Lærðu að þekkja streitumerkin fyrr, rjúfa sjálfvirk streituviðbrögð og bregðast við af meiri meðvitund.

Á næstu fjórum dögum færðu stutta fræðslu og hagnýt verkefni sem taka aðeins 5–10 mínútur á dag.

STOPPA • ANDA • SKOÐA • VELJA

Skráðu þig ókeypis og taktu fyrsta skrefið.

Skrá mig ókeypis

JÓGA NIDRA - 4 VIKNA STAÐNÁMSKEIÐ

Hefst 13. október 2026
HUGARKYRRÐ OG DJÚPSLÖKUN

Á þessu 4 vikna námskeiði færð þú tækifæri til að:

Sleppa tökum á spennu og streitu

Rækta meiri hugarró og jafnvægi

Auka orku og endurheimt

Dýpka tengsl við sjálfan/n þig

Læra aðferðir sem þú getur nýtt í daglegu lífi

Námskeiðið hentar öllum – engin fyrri reynsla af jóga eða hugleiðslu er nauðsynleg. 

Nánari upplýsingar

Jóga Nidra djúpslökun

Frír aðgangur

Jóga Nidra er liggjandi hugleiðslutækni sem byggir á öndun og slökun, núvitund, líkamsvitund  og tengingu við hið innra sjálf.

FRÍR AÐGANGUR HÉR